27.8.2007 | 14:31
Of mikið af fötum.
Ég er að drukkna í fötum. Fötin réðust inn í íbúð mína í 5 sórum ferðatöskum ásamt her af litríkum glösum, ilmefnum og allskyns smá dóterí. Fyrst var stofan mín tekin yfir.. og áður en ég vissi þá þurftu mín föt að flýja úr sínu gróðursama landi yfir í eyðimörk.
Innrásar fötin komu með sína eigni litlu eyju en þurftu land fatanna minna líka., svo mikið var af þeim. En eftir smá stríð og samninga var ákveðið að mín föt mættu vera ennþá í sínu landi en bara úti í horni með lítið land.
Mín föt er að vona að innrásarfötin fari að fækka aðeins í liði og eru hafnar samningsviðræður um þau mál.
Smá dóteríið er núna að dreifast um alla íbúð. það skríður inn í skápa, upp á hillur og ofan á borð. Margt smá dóteríð lenti í sterkri andstöðu og neyddist til að enda niður í geymslu...
Solla er flutt inn.
Mikið af dóti... og næstum allt komið á sinn stað... ótrúlegt. Ætli það sé ekki mömmu að þakka, hún kom í heimsókn og skipaði sjálfa sig verkstjóra og keyrði okkur áfram... tekið úr kössum, sett í kassa, færa húsgögn, henda í geymslu... sópa, henda í rusluð Bleiku og Bláu... allt gert á 2 tímum... Snilld.
Simon asks...
Tenglar
Bullarar
Aðrir bloggarar
- Sigga og Gestur Miðjarðarhafs sjóræningjar
- LittleMissly
- Nördarnir
- Ritstífla
- Hjördís
- Tezla
Annað
Annað dóterí
- Picasa vefmyndsvæði Myndsvæði mitt. Fremur tómt eins og stendur.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.