31.7.2007 | 09:05
I Think my Brain is Damaged
Við fyrstu sýn þá virðist sem veran á myndinni sé að snúast frá vinstri til hægri.
En það er hægt að snúa við snúningnum.
Til að snúa við snúningnum þá þarftu að horfa á skuggann í nokkrar sekúndur. Svo hægt og rólega horfðu ofar á myndina. Áður en þú veist af þá er myndin farin að snúast í hina áttina.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.7.2007 | 08:56
Japanskt sjónvarpsefni.
Íslendingar hafa mjög gaman að því að apa eftir öðrum þjóðum. Sérstaklega þegar kemur að sjónvarpsefni. Og þá sérstaklega Bandaríkjamönnum. Við erum með Idol, X-factor, Bachelor, Allt í drasli og fleiri.. Svo eru nú líka Strákarnir og Punked. Hvernig væri nú að einhver myndi reyna að verða smá frumlegur og fara að apa eftir Japönum. Japanir gera mjög furðulega og skemmtilega sjónvarpsþætti. Hægt er að finna fjöldann allan af þessum þáttum á youtube og það er hressandi að sjá eitthvað sem maður hefur ekki séð 100 sinnum áður.
Hér eru nokkur dæmi um japanska sjónvarpsþætti.
En það er nú spurning með Íslendingana hvort þetta sé bara of mikið brjálæði. Þetta er nú "gameshow" og ég hef ekki séð þannig í langan tíma... ja... fyrir utan Villtu vinna milljón... apapapa.
Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.7.2007 | 11:27
Það er gaman að bregða fólki.
Ég rakst á þetta á youtube. Enjoy.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.7.2007 | 10:19
Thank Me It´s Friday!
Ég var að átta mig á svolitlu þegar ég var að skrifa fyrirsögnina. Ég er guð. Ég sagði reyndar einu sinni á skemmtistaðnum Gauk á Stöng öllu fólkinu þar að ég vær gylltur Guð. Ég var reyndar búinn að drekka helling af áfengi. Höddi félagi minn var vitni af þessu spyrjið hann nánar út í það. Ég var eitthvað óvenjuglaður þann dag.
Í dag er föstudagur, flöskudagur í huga margra. Þetta er síðasti vinnudagurinn í vikunni, þetta er dagurinn sem okkur er sleppt lausum. Þetta er dagurinn sem margir taka sig til og innbyrgða marga lítra af áfengi, reykja tvo pakka af sígó, lenda í heimskum umræðum, lenda í götunni og stundum, eins og Rökkvi félagi minn sagði eitt sinn, lenda í brussu.
Rökkvi var á tímabili alltaf að senda mér og félögum mínum sms, í hvert skipti þegar hönum tókst að fylla stelpu það mikið að hún svaf hjá honum. TölvunarfræðiSKOR var sms-ið. Rökkvi var alltaf að eltast við mjög feitar stelpur á tímabili.. Hann sagði að þær væru honum alltaf svo þakklátar...
Ég er að pæla í því hvort ég eigi að gera eitthvað af mér í kvöld. Hitta mína vini og taka mig smá til og drekka marga lítra af bjór. Reykja tvo pakka af sígó, lenda í heimskum umræðum... Held að ég láti einhverja aðra um að lenda í götunni og brussu... Stefni bara á að lenda í þynnku...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.7.2007 | 09:53
UHF
Langt síðan maður hefur séð þessa mynd. Var allavega snilld á sýnum tíma.
Spurning hvernig hún hefur elst...
25.7.2007 | 09:25
Ugh
Ég vil eiginlega fá að spila PlaneScape:Torment, KOTOR, Fallout, Baldur´s Gate, Ultima IV og fleiri leiki aftur. Eina sem virðist koma út núna eru Japanskir RPG leikir og heiladauðir skotleikir. Japanskt RPG er bara skrítið. Einhverir karakter með blátt spiky hár, haldandi á risasverði, virkandi hálf þunglyndir, kvnelegir í útliti er bara lame.. Engin persónusköpun, bara hor. Allt í lagi með skotleiki en stundum vill maður ekki fá hjartaáfall þegar maður vill slappa af í tölvuleik. Ég held að tími RPG leikjanna sé búinn. Fólk hugsar ekki lengur.. vill bara sýna walkmans og MTV.... Kannski er ég að verða of gamall fyrir tölvuleiki... nah...
Þetta var smá nördapóstur.
Já... meðan ég man, hvað er með það að Hyundai sé frá suður-Kóreu!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.7.2007 | 11:38
Back in the Chair of DOOM!
heh, eftir þrjá mánuði verð ég kominn á fertugsaldurinn... An old man, yet none the wiser.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2007 | 17:13
Iceland Stand-in-Lines

![]() |
Á áttunda tug hljómsveita og listamanna hafa staðfest þáttöku í Iceland Airwaves |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.7.2007 | 18:55
Banna Trampólín!.... djók
![]() |
Karlmaður slasaðist á trampólíni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Simon asks...
Tenglar
Bullarar
Aðrir bloggarar
- Sigga og Gestur Miðjarðarhafs sjóræningjar
- LittleMissly
- Nördarnir
- Ritstífla
- Hjördís
- Tezla
Annað
Annað dóterí
- Picasa vefmyndsvæði Myndsvæði mitt. Fremur tómt eins og stendur.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.9.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar